Úr hvaða mynd er þetta?
"I don't know what to say, except it's Christmas and we're all in misery."
Crazy like a fox - Hungry like a wolf
Ég er þegar byrjaður að þjálfa Dúa uppí að taka þetta hérna í nefið.
Uppeldið gengur áfram alveg glimmrandi vel.
Mánudagur og stemmarinn á fullu. Ef ég fæ mér einn kaffibolla í viðbót þá verð ég að skokka nokkra hringi í kringum Odda.
Sonur minn verður með besta ónæiskerfi í öllum leikskólanum þegar hann byrjar þar. Það er ef hann heldur svona áfram að taka upp hverja pestina á fætur annarri.
Það er gaman að fylgjast með útblásnum tenór gera sig að fífli fyrir framan alþjóð en fyrr má nú aldeilis fyrr vera. Sá hann í Íslandi í bítið í gær og hló og hneykslaðist til skiptis. Þegar hann mætti síðan veifandi disknum sínum í Kastljósið var kominn tími til að horfa á eitthvað annað. Kanski bara slökkva á imbanum?