The Sounds of the Sounds of Science

Crazy like a fox - Hungry like a wolf

fimmtudagur, maí 31, 2007

Þar sem Howard hefur aldrei farið í kynskiptiaðgerð þá skiptist valið á milli þess að hann er nafni Johns Howards fangelsiskalls eða að hann er líkur Gorba. Þetta er gífurlega erfitt val og ég ætla að taka mér sólarhring í viðbót til að melta málið. Þið hin reynið að hemja spennuna þangað til.

Ein leið til að dreifa huganum er að fara á bíó og þá vil ég endilega mæla með Kabúl Transit í kvöld:

Mannfræðingurinn David B. Edwards mun sýna heimildarmynd sína
Kabul Transit
í Tjarnarbíói fimmtudaginn 31. maí klukkan 20:00. Eftir sýningu á myndinni segir David nánar frá myndinni og rannsóknum sínum í Afganistan.