The Sounds of the Sounds of Science

Crazy like a fox - Hungry like a wolf

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Sko mig - ég sem var búinn að sjá fram á survævor færslu barasta horfði ekkert á survævor í gær. Benni kom í mat og Dúi át gleraugun hans. Gaman að fá fólk í heimsókn og hafa slökkt á imbanum svona til tilbreytingar.

Lærði ýmislegt gagnlegt í gær eins og að Valur er fótboltalið Framsóknarmanna og KR er fótboltalið Sjálfstæðismanna. Fylkir og einhver önnur lið sem ég vissi ekki einu sinni að séu til eru víst fyrir þá sem hallast til vinstri. Reyndar var mér tjáð að þetta væri ekki alveg svona klippt og skorið þar sem þetta fer líka mikið einfaldlega eftir hverfum og í Reykjavík er ekki ósjaldan stutt á milli blokkanna og einbýlishúsanna. Gaman að þessu.

1 Comments:

At miðvikudagur, 23 febrúar, 2005, Blogger Fláráður said...

takk Valdi - þetta er allt að verða ljósara fyrir mér.

 

Skrifa ummæli

<< Home