Björk - og aðrir ferðalangar,
Ef þið rekist á bolla með myndum af misheppnuðum konunglegum hjónavígslum (þ.e. ef hjónin eru skilin - ekki að brúðguminn hafi gleymt að fjarlægja neon-appelsínugula tilboðsmiðann af skósólanum þannig að allir kirkjugestir sáu þegar hjónin krupu fyrir framan prestinn eins í dagbókinni hans Dadda) þá megiði endilega hafa mig í huga. Á fimm bolla eins og er og er alltaf til í að bæta við mig.
2 Comments:
Sko, kallaogkamillubollarnir eru de facto ekki dæmi um misheppnað skilnaðarhjónaband. Þetta eru bara tveir ófríðir enskir einstaklingar sem allir hinir ófríðu Englendingarnir gera grín að, svo ef ég finn svoll. á ég að kaupa einn, eða eru það bara skilnaðarbollar sem blífa í safnið?
Hehehe, ég væri alveg til í að eiga bolla með fyrsta gay hjónabandinu í konungsfjölskyldunni.
Skrifa ummæli
<< Home